26.2.2008 | 01:58
Schumi kallinn!
Eitt verð ég að nefna við þessa frétt. Schumacher hefur ávallt verið minn maður og væri ég líklegur til að gefa aleigu mína til að hitta þann ágæta mann.
En mér er spurn, hví í fjáranum var hann að hætta í þessu sporti? ég geri mér nú kannski grein fyrir því að hann vilji fara að eyða meiri tíma með konu sinni og börnum þar sem þau hafa þurft að þola mikið álag gegnum feril hans, og hann hætti sannarlega á toppnum maðurinn.
En svo kemur æfingartímabilið fyrir keppnistímabilið 2008.. hann birtist á æfingum og er tæknilegur ráðgjafi liðsins, hann skreppur upp í eitt stykki formúlu 1 bíl, og gjörsamlega valtar yfir menn eins og Raikkonen og Massa á æfingum. Ég held að Ferrari liðið ætti nú bara að ráða meistarann aftur undir stýri með hans vilja og láta hann sýna þeim í þessum bílum hver sé sá sem ræður ríkjum í þessari íþrótt.
Hamilton með frumkvæði gegn Ferrari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvar kemur fram að hafi verið fljótari en Raikkonen á æfingum??
pétur (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 13:22
Það var nú bara fyrr á keppnistímabilinu, villtist inná www.f1racing.net og sá þetta þar, Schumacher og Raikkonen voru á æfingum og Schumi var að ganga frá fyrri tímum Raikkonen og Massa. Schumi hætti alltof snemma, eins gott að einhver af hans krökkum komi í framtíðinni og geri sömu hluti og sá gamli, þá er hægt að fara að halda með einhverjum aftur ;)
Mikael Þorsteinsson, 28.2.2008 kl. 04:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.