5.5.2009 | 00:41
Ungt fólk og skuldir
Var að lesa þetta. Ég er í þessum hópi fólks á aldrinum 18-25 eins og okkur er skipt niður. Ungt fólk í dag fær enga hjálp varðandi fjármál. Fyrst þú ert ungur, þá áttu bara að borga það sem ber að borga, jafnvel þótt þú sért nýhættur í námi eða nýkominn á vinnumarkaðinn. Tek mig sem dæmi, mér er sama þótt fólk viti eitthvað um mín fjármál, enda kemst fólk ekki inná reikningana mína.
Ég á bíl sem er á verðtryggðu skuldabréfaláni upp á 1.000.000 í íslenskum krónum. Hef borgað um 500.000 krónur af þessu láni + 250.000 krónur í tryggingar og 40.000 krónur í bifreiðagjald sem er náttúrulega algjört kjaftæði að þurfa að borga. Lánið stendur í 998.000 krónum í dag, hef borgað 500.000 krónur en lánið lækkað um 2000 krónur, virkilega þægilegt. Borgun uppá 50.000 krónur á mánuði
Er með 500.000 í yfirdrátt sem er tilkomið vegna þess að námslán hjá LÍN eru brandari og ekkert gert fyrir námsmenn hérlendis sem er einsdæmi. Er að borga 15.000 krónur á mánuði inná yfirdráttarheimild en hún lækkar ekkert vegna vaxta, þannig ég tapa bara 15.000 krónum á mánuði og lækka ekki heimildina um krónu.
Er með kredidkort sem gengur vel að borga af. En ungur maður með 140.000 krónur útborgaðar á mánuði fyrir 100% starf er ekkert sérlega vel staddur með að borga niður þetta og þurfa að framfleyta bara sjálfum sér.
Eitt vil ég vita, af hverju er bara talað um fólkið sem getur ekki borgað lánin sín vegna peningaleysis. Af hverju er aldrei fólkið í umræðunni, sem GETUR borgað lánin sín alveg eins og gengur og gerist, en eiga síðan 5000 krónur til að framfleyta sér yfir mánuðinn eftir það.. Þarf ekkert að hjálpa því fólki?? maður spyr sig
og já PS. Fjandinn hirði Jóhönnu og Steingrím, þau eiga ekki eftir að gera neitt gott í ríkisstjórn nema að skuldsetja þjóðina ennþá betur ;)
Kikna undan skuldum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sælir...
Ég fann þig þegar ég var að googla um persónuafslátt í Noregi...
Nú er ég búinn að fá vinnu í Norge og langar vita hvað persónuafslátturinn er... Ég er búinn að leita á þessum helstu vefum en finn ekkert um hann.Hefur þú einhverja hugmynd um hvað hann er ??
Kristvin Guðmundsson, 17.5.2009 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.